On 18 February, 2025.
Søstrene Grene innkallar hér með: vatnsliti, 12 stk.
Innköllunin á aðeins við um tilteknar lotur af vörunni sem hafa verið seldar frá 12. september 2022. Aukið magn af blýi hefur fundist í hvíta litnum sem fer yfir sett viðmiðunarmörk, sem hefur í för með sér heilsufarsáhættu við snertingu við húð eða við inntöku.
Þess vegna er Søstrene Grene að innkalla vöruna úr þessum tilteknu lotum. Lotunúmerið má finna við hlið verðsins á umbúðunum (230866). Loturnar sem um ræðir eru:
230866, 197019, 198467, 208690, 213463, 216944
Allir sem hafa keypt vatnsliti úr þessum lotum geta því fengið þá endurgreidda að fullu eða fengið þeim skipt fyrir vöru að sama virði með því að skila henni í verslun Søstrene Grene. Ekki þarf að framvísa kvittun. Þetta á einnig við þótt vöruumbúðir hafi verið fjarlægðar og lotunúmerið því ekki lengur sýnilegt.
Søstrene Grene biðst velvirðingar á óþægindunum og vinnur hörðum höndum að því að tryggja að viðskiptavinir njóti öryggis í viðskiptum sínum við Søstrene Grene.
Ef spurningar vakna varðandi þessa innköllun skal hafa samband við: contact@sostrenegrene.com